Jóhannesarjurt hefur til margra ára verið notuð til að meðhöndla ýmsar
tilfinningaraskanir (geðraskanir). Á miðöldum var jurtin m.a. gefin í
því skyni að losa fólk við djöfla sem það var heltekið af, en
djöflarnir voru taldir orsaka geðtruflanir á þeim tímum. Jóhannesarjurt
er skráð sem náttúrulyf á Íslandi, undir nafninu Modigen®.
Heiti Jóhannesarjurt St. John´s worth Modigen (sérheiti náttúrulyfs)
Innihaldsefni Hypericum perforatum L. extrakt Hvert hylki inniheldur 300mg af virka innihaldsefninu, staðlað innihald er 900µg hypericin.
Verkunarmáti Jóhannesarjurt
er eitt mest rannsakaða náttúruefnið með tilliti til virkni. Talið er
að hypericin auki að einhverju leyti virkni serótóníns, noradrenalíns
og dópamíns sem eru taugaboðefni í heila. Röskun á jafnvægi þessara
boðefna er talin tengjast þunglyndi.
Rannsóknir Rannsóknir sýna að Jóhannesarjurt geti hjálpað í vægum
tilfellum þunglyndis. Með hliðsjón af mörgum og vel útfærðum tilraunum
og mikilli notkun virðist Jóhannesarjurt vera tiltölulega áhrifarík og
örugg að því tilskildu að hún sé notuð í því magni sem mælt er með.
Notkun - Við depurð, framtaksleysi og vægu þunglyndi. - Ef áhrifa af meðferð verður ekki vart innan 4-6 vikna skal hætta meðferð.
Skammtar Fullorðnir: 1-2 hylki á dag Börn: Náttúrulyfið er ekki ætlað börnum yngri en 12 ára án tilvísunar læknis.
Aukaverkanir - Ljósnæmisviðbrögð, s.s. kláði og roði á húð, einkum
hjá fólki með ljósa húð. - Óþægindi frá meltingarvegi, ofnæmi og þá
aðallega útbrot, svimi, þreyta og óróleiki. - Í einstaka tilvikum hefur
oflæti (mania) komið fram.
Milliverkanir - Geðdeyfðarlyf.
- Segavarnarlyf s.s. warfarin (Kóvar®). - Dígoxín, siklósporín,
próteasahemla (HIV), teófýllín (astmalyf), olanzapín og clózapín
(sefandi lyf), sterar. Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni þessara
lyfja. - Lyf sem auka ljósnæmi eins og kínín, tetrasýklín sýklalyf og
tíazíð-þvagræsilyf. - Píroxíkam (bólgueyðandi lyf), ómeprazól og
lansóprazól (magalyf). - Milliblæðingar hafa orðið hjá konum sem taka
getnaðarvarnatöflur, - Jóhannesarjurt getur dregið úr virkni
getnaðarvarnataflna.
Frábendingar Ófrískar konur og konur með barn á brjósti ættu ekki
að taka efnið inn án samráðs við lækni. Náttúrulyfið er ekki ætlað
börnum án tilvísunar frá lækni.
Handhafi markaðsleyfis Jemo-pharm A/S Hasselvej 1 4780 Stege Danmörk
Umboðsaðili á Íslandi Heilsuverslun Íslands ehf. Borgartúni 7 105 Reykjavík
Heimildir http://www.tnp.comUpplýsingar frá umboðsaðila á fylgiseðli
A.Peirce.
Practical Guide to Natural Medicines. 1999, A Stonesong Press Book
William Morrow and Company INC, New York. Bls. 566-569.