
Náttúrulyf innihalda eitt eða fleiri virk efni sem unnin eru á einfaldan hátt (t.d. með þurrkun, mölun, úrhlutun, eimingu, pressun) úr plöntum, dýrum, örverum, steinefnum eða söltum. Hrein efni einangruð úr náttúrunni teljast ekki náttúrulyf. Náttúrulyf eru eingöngu ætluð til inntöku eða staðbundinnar notkunar á húð eða slímhúðir. Ekki má blanda í náttúrulyf lyfseðilsskyldum efnum. Hómópatalyf teljast ekki til náttúrulyfja. Náttúrulyf geta verið ætluð mönnum eða dýrum. Sækja þarf um markaðsleyfi náttúrulyfs fyrir náttúruvöru sem er markaðssett eða auglýst á þann hátt að ljóst sé, að viðkomandi vara sé ætluð til lækninga, fróunar eða varnar gegn sjúkdómum eða sjúkdómseinkennum í mönnum eða dýrum. Sama gildir um náttúruefni sem ætlað er að hafa áhrif á líkamsstarfsemi manna eða dýra eða er markaðssett með þeim hætti.