Lyfja hf stofnuð árið 1996

Saga
Lyfju hf. hófst árið 1996 þegar ákvæði nýrra lyfjalaga sem tryggðu
frelsi í stofnun og rekstri lyfjabúða tóku gildi. Lagabreyting þessi
hafði mikil áhrif á lyfjamarkaðinn, en áður höfðu yfirvöld úthlutað
lyfsöluleyfum. Fyrir breytinguna höfðu apótekin skipt með sér
markaðssvæðum. Í því umhverfi var samkeppni nánast engin og lyfjaverð
var það sama í öllum apótekum. Nú hefur samkeppni á lyfjamarkaði leitt
til aukinnar fjölbreytni í þjónustu apótekanna, jafnframt því sem
lyfjaverð hefur lækkað umtalsvert.
Drög að stofnun Lyfju urðu
til áður en nýju lögin höfðu tekið gildi. Fyrirtækið Lyfja var stofnað
þann 11. apríl 1996 og verslunin Lyfju í Lágmúla var fyrsta apótekið
sem var rekið með breyttri áherslu og öðrum markmiðum en áður höfðu
tíðkast. Heilbrigð samkeppni og skynsamleg verðlagning var orðin
staðreynd í lyfsölu. Lyfja er brautryðjandi í lækkun lyfjaverðs og
hefur frá upphafi lagt áherslu á að selja lyf á lágmarksverði.
Forsvarsmenn Lyfju, þeir Ingi Guðjónsson og Róbert Melax, brydduðu
einnig upp á ýmsum nýjungum og hafa frá upphafi lagt ríka áherslu á að
veita viðskiptavinum sínum sem mesta og besta ráðgjöf og þjónustu.

Í
júni 1996 var fyrirtækið Lyfjabúðir ehf stofnað af Jóhannesi Jónssyni í
Bónus, Guðmundi Reykjalín viðskiptafræðingi og þremur lyfjafræðingum.
Hlutverk fyrirtækisins var að annast rekstur lyfjabúða víðsvegar á
höfuðborgarsvæðinu undir nafninu "Apótekið". Við stofnun Baugs hf um
mitt ár 1998 runnu Lyfjabúðir ehf saman við Hagkaupsapótek sem rekin
voru af Lyfjakaupum ehf. Um áramótin 1998-99 varð sú breyting á
eignarhluta að Jóhannes keypti út fyrrnefnda lyfjafræðinga. Á þessum
tíma ráku Lyfjabúðir ehf 10 apótek. Helsta aðalsmerki apótekanna hefur
ávallt falist í hagstæðu verði. Staðsetning þeirra er yfirliett í
nálægð við verslunarkjarn eða stærri matvörubúiðir s.s. Hagkaup og
Bónus.
1996 / Lægra lyfjaverð og lengri afgreiðslutímiFrá
stofnun Lyfju hf. hefur verið lögð áhersla á lægra lyfjaverð og lengri
afgreiðslutíma. Afgreiðslutími Lyfju Lágmúla var í upphafi frá 9-22
alla daga ársins. Í dag er opið frá 8-24 alla daga nema aðfangadag og
gamlársdag þá er opið til 18. Lögð var áhersla á fjölbreytt vöruúrval
og nýjungar viðskiptavinum til hagsbóta.Hjúkrunarfræðingur var ráðinn
til starfa og hafði hann sérstakt móttökuherbergi þar sem
viðskiptavinir gátu í næði skoðað t.d. stoma- og þvaglekavörur,
sjúkrasokka, hitahlífar o.fl. og fengið ráðgjöf um notkun þessa. Þá
höfðu viðskiptavinir greiðan aðgang að lyfjafræðingi þar sem
afgreiðslan var í opnu umhverfi. Lögð var áhersla á að veita markvissar
upplýsingar um val á lyfjum og notkun þeirra. Mun meira varð af
sjálfsafgreiðsluvörum í versluninni en sést hafði áður hér á landi.
1997 / Bæklingar um algenga kvillaGefnir voru út
bæklingar um algenga kvilla er geta hrjáð mann og var þeim dreift
ókeypis í apótekum Lyfju. Bæklingar þessir voru unnir í samvinnu við
Félag íslenskra heimilislækna og hafa þeir ótvírætt upplýsingagildi.
1998 / Útgáfa LyfjubókarinnarLyfja
gaf úr Lyfjubókina í samstarfi við Ými Vésteinsson lyfjafræðing. Ritið
er ítarlegt upplýsingarit um lyf og virkni þeirra. Vinna við bókina
hófst á haustmánuðum 1998. Auk Ýmis skrifuðu fleiri lyfjafræðingar um
einstök lyf , lyfjaflokka eða afmarkaða þætti í bókinni. Þeir eru: Árni
Vésteinsson, Áslaug Guðný Jónsdóttir, Bryndís Þórsdóttir, Erna
Björnsdóttir, Henrik Óskar Þórðarson, Inga Pálsdóttir, Ingi Guðjónsson
og Pétur Magnússon. Lyfjubókin veitir neytendum faglegar og
greinargóðar upplýsingar um lyf og lyfjanotkun og stuðlar þannig að
öruggari lyfjameðferð. Bókin kom út haustið 1999 og seldist í 3.000
eintökum fyrsta árið. Hún þykir vera mjög aðgengileg og margir
viðskiptamenn Lyfju hafa hrósað henni óspart fyrir einfaldleika.
1999 / Heilsuvefur Lyfju
Heilsuvefur
Lyfju var settur lagginar í samstarfi við Visi.is. Honum er ætlað að
vera upplýsingabrunnur fyrir fólk um lyf, lyfjanotkun, almennt
heilsufar og hollustu. Á heilsuvefnum er líka Lyfjubókin, upplýsingarit
um lyf á Íslandi, og fá neytendur beinan aðgang að henni á vefnum.
Neytendur geta sent sérfræðingum, s.s. lyfjafræðingum, læknum og
hjúkrunarfræðingum, spurningar um hvaðeina er tengist lyfjameðferð og
heilsu.
2000 / Ráðgjöf til viðskiptavina og mælingar
Haustið
2000 hóf Lyfja að bjóða fólki upp á mælingar á blóðfitu og blóðsykri
gegn vægu gjaldi. Í þessum mælingum eru notuð áreiðanleg og nákvæm tæki
sem eru gæðaprófuð reglulega. Í nóvember árið 2000 hófust svo mælingar
á beinþéttni í Lyfju Laugavegi.
2000 / Fyrsta Netverslunin á Íslandi með lyf
Þriðjudaginn
4. september opnaði Lyfja netverslun í samvinnu við Vísi.is. Í
versluninni eru ýmsar vörur í boði. Þar mætti nefna heilsu- megrunar-
og hjúkrunarvörur. Í netversluninni er einnig hægt að fá heimsendingu á
lyfjum sem selja má án lyfseðils. Þessi nýjung er fyrsta sinnar
tegundar hér á landi, að hægt sé að kaupa lyf gegnum íslenskan vef. Á
Íslandi er ekki heimilt að póstsenda lyf. Fyrirkomulagið er því háttað
þannig að starfsmaður Lyfju annast sendingar sem innihalda
lausasölulyf. Af þessum sökum reynist einungis unnt að senda
lausasölulyf heim til viðskiptavina á höfuðborgarsvæðinu. Auðvelt er
fyrir viðskiptavini að leita sér upplýsinga um þau lausasölulyf sem
hægt er að panta hjá netversluninni þar sem Lyfja rekur einnig
heilsuvef. Í netversluninni eru tölvutengdir textar um lyfin við
Lyfjubókina sem Heilsuvefurinn hýsir eins og áður sagði. Netverslunin
var lögð niður um ári síðar og er ekki í gangi í dag.
2000 / Lyfja hf og Lyfjabúðir ehf sameinastÞann
4. desember 2000 sameinuðust Lyfja hf og Lyfjabúðir ehf undir einn hatt
og nefnast Lyfja hf. Félagið varð með þessu sjálfstætt dótturfélag
innan Baugssamstæðunnar en var stjórnað af stofnendum Lyfju, þeim Inga
Guðjónssyni og Róberts Melax. Eftir sameininguna átti Baugur 55%
hlutafjár í sameinuðu félagi en eigendur Lyfju 45%. Sameiningin renndi
sterkari stoðum undir það markmið að viðhalda lágu lyfjaverði. Sameinað
fyrirtæki rekur lyfjaverslanir undir tveimur heitum, "Lyfja" og
"Apótekið", og með sömu áherslum og hafa verið.
2001 / Samkeppnisstofnun setur Lyfju hf skilyrðir fyrir samruna fyrirtækjannaSamkeppnisráð
gat í krafti sinnar stöðu ógilt samrunann eða sett honum skilyrði. Þann
2. febrúar 2001 setti samkeppnisráð skilyrði vegna samruna Lyfju hf og
Lyfjabúða ehf. Lyfju hf varð skylt að selja í einu lagi fimm af fjórtán
starfandi apótekum á höfuðborgarsvæðinu.
Ráðið komst að þeirri
niðurstöðu að samruninn leiddi til markaðsráðandi stöðu Lyfju á
höfuðborgarsvæðinu. Slíkt hefði skaðleg áhrif á samkeppni og væri
andstætt hagsmunum neytenda ennfremur sem samruninn hindraði virka
samkeppni.
Viðræðum Lyfju og samkeppnisyfirvalda lauk með því að
fyrirtækið féllst á að selja í einu lagi fimm af fjórtán starfandi
apótekum sínum á höfuðborgarsvæðinu. Að uppfylltum þeim skilyrðum taldi
samkeppnisráðið að hugsanleg skaðleg áhrif samrunans væru þar með úr
sögunni.
2001 / Lyfja hf selur fimm apótek í einu lagiÞann
20. júlí seldi Lyfja hf fimm lyfjaverslanir í samræmi við ákvörðun
samkeppnisráðs frá 2. febrúar. Kaupandi var Hagræði hf. sem rekur
lyfjaverslanir undir nafninu Lyf og heilsa. Forsvarsmenn Lyfju hf
töldust með þessu vera búnir að uppfylla sett skilyrði samkeppnisráðs
en vera engu að síður ósáttir við söluna þótt þeir hafi ákveðið að lúta
í læga haldi fyrir samkeppnisráði.
1999-2005 / Nokkur apótek á landsbyggðinni sameinast LyfjuFrá árinu 1999 hafa nokkur apótek á landsbyggðinni sameinast Lyfju, fyrst Egilsstaða Apótek og nú síðast Árnes Apótek.
Fyrir
utan höfuðborgarsvæðið eru apótek Lyfju í Borgarnesi, á Sauðárkróki,
Ísafirði, Húsavík, Egilsstöðum, Neskaupstað, Selfossi og Keflavík.
Apótekið er á Akureyri og á þremur stöðum á höfuðborgarsvæðinu.
2004 / Hlutafé í Lyfju seltÍ byrjun árs 2004 seldu stofnendur Lyfju hf sinn hlut til Haga og var þá félagði 100% í eigu Haga.
Skömmu
síðar selja Hagar Lyfju til eignarhaldsfélagsins Árkaupa. Ingi
Guðjónsson, annar stofnanda Lyfju, var áfram framkvæmdastjóri félagsins.
2006 / Nýr framkvæmdastjóri Lyfju hfÍ apríl 2006 lét Ingi Guðjónsson af framkvæmdastjórastörfum hjá Lyfju hf eftir rúmlega 10 ára farsælt starf.
Við framkvæmdastjórastarfinu tók Sigurbjörn Gunnarsson.