Seról hætt að virka?

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Sæll. Ég vildi forvitnast aðeins hjá þér. Þannig er mál með vexti að kærastinn minn tekur Seról og hefur gert í 2-3 ár. Honum finnst það ekki virka eins og skyldi, fær síendurtekin kvíðaköst og sterkari en oft áður. Hann sefur illa, svimar, svitnar, sér óskýrt og hefur fleiri kvilla sem lýsa sér sem aukaverkanir af lyfinu. Honum líður auðvitað mjög illa yfir þessum kvíðaköstum og ég ákvað að spyrja hvað væri hægt að gera. Á hann að fá önnur lyf eða? Getur þetta verið eðlilegt eftir svona langa notkun eða? Þ

Svar:

Ef þessi einkenni eru að koma fram núna eftir þetta langa notkun er ekki líklegt að þetta séu aukaverkanir Seróls. Það er þó nokkuð ljóst að meðferðin dugar ekki sem skyldi, hver svo sem orsökin er. Einkenni þunglyndis eða kvíða eru ekki stöðug, þau koma og fara, og það getur verið erfitt að benda á eitt ákveðið atriði sem veldur því að þau taka sig upp. Álagið sem þú talar um gæti haft eitthvað um þetta að segja, önnur lyf og náttúruefni geta haft áhrif á verkun lyfsins og það væri rétt að fara yfir þann möguleika. Það er alla vega mikilvægt að hann hafi samband við lækni og að þeir ákveði framhaldið í sameiningu.

Það er mögulegt að skipta þurfi um lyf, að nota þurfi önnur lyf með Serólinu tímabundið til að slá á kvíðann, eða að einhverjar breytingar á lífsstíl dugi til - t.d. að hann komist undan álaginu.
Vona að þetta komi að einhverju gagni

Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.