Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Ég hef verið mjög þunglynd og verið á þunglyndislyfjum var á Seroxat og steyptist öll út í bólum og fitnaði um 10 kíló...þá fékk ég Zoloft, hef ekki þorað að taka þau. En vill endilega fá að vita hvort ég geti lent í þessu sama með þessi lyf...
Svar:
Já, það er möguleiki á því. Aukin svitamyndun, sem getur valdið því að fólk steypist út í bólum, er þekkt algeng aukaverkun hjá Seroxat og Zoloft. Önnur skyld lyf, t.d. Seról og Cipramil geta einnig valdið þessari aukaverkun.
Varðandi þyngdaraukninguna þá geta þessi lyf valdið þyngdarbreytingu, sem þarf ekki endilega að vera þyngdaraukning. Til dæmis er þyngdartap algeng aukaverkun lyfsins Zoloft.
Aukaverkanir eru einstaklingsbundnar og ef þær koma fram þá þarf alltaf að meta kosti þess að taka lyfið inn gagnvart ókostum þess. Þetta virðist eiga vel við um framannefnd lyf því mér finnst sem fólk þurfi stundum að prófa sig áfram með þessi lyf.
Vona að þetta svari spurningu þinni.
Kveðja, Heimir Þór Andrason lyfjafræðingur