Spurning

Fræðsla og forvarnir > Geðheilsa > Spurt og svarað > Lexotan og getuleysi
Lexotan og getuleysi
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Sæll. Kærastinn minn var settur á Lexotan, tímabundið vegna kvíðakasta. Mig langar að vita hvort þetta lyf geti valdið getuleysi eða eins og maður segir "neikvæðri kynhvöt"? Kveðja :)

Svar:

Lexotan er í flokki svokallaðra benzódíazepínlyfja og er róandi og kvíðastillandi lyf sem er notað við ótta, kvíða, óróleika og svefntruflunum sem fylgja taugaveiklun eða geðdeyfð. Vegna ávanahættu á einungis að nota lyfið í stuttan tíma í senn.

Varðandi aukaverkanir lyfsins þá geta þær verið nokkrar. Má þar nefna að lyfið getur valdið þreytu, syfju, slappleika, og minnkaðri kyngetu.

Benzódíazepínlyf hafa engin bein áhrif á stinningu getnaðarlims eða sáðlát, en róandi áhrif lyfjanna geta minnkað kynörvun og leitt til getuleysis í einhverjum tilfellum. Á hinn bóginn geta lyfin aukið kynörvun í þeim tilfellum sem óróleiki hefur valdið minnkaðri kynörvun.

Vona að þetta svari spurningu þinni.

Kveðja, Heimir Þór Andason lyfjafræðingur