Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
birn spurði:
Ég hef verið á Seroxati í nokkurn tíma (4 mán.) og hefur það gefist nokkuð vel á kvíða og geðdeyfð. Þó finnst mér Paxal virka betur en læknirinn minn hefur sagt að ég megi taka það af og til. Það getur hins vegar verið ávanabindandi. Því spyr hvort Exan gæti komið í stað Paxals og hvort taka megi það með Seroxati.
Svar:
Það er alveg rétt að Paxal er ekki lyf sem "æskilegt" er að nota að staðaldri.
Það eru engar þekktar milliverkanir milli Seroxats og Exans þannig að það ætti ekki að skapa vandamál. Það að nota Exan er ekki endilega betri kostur þótt erfitt sé fyrir mig að meta slíkt þar sem ég þekki ekki þína sögu vel. Exan er þó lyf sem einnig á að nota í skamman tíma. Einnig hafa komið margir efasemdir um að klínísk virkni þess lyfs sé ekki góð, það gæti þó möglega hentað þér. Erfið spurnig, vona að þú hafir gagn af.
Kveðja Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur