Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Ég fór til læknis vegna þess að ég hef lengi verið með létta félagsfælni. Hann gaf mér Efexor depot, sem mér skilst að sé við þunglyndi sem ég tel mig ekki hafa. Væri td. Fontex eða önnur lyf betri fyrir mig? Með fyrirfram þökk, NN.
Svar:
Þessu er mjög erfitt að svara þessu án þess að þekkja alla söguna þína, en það gerir læknir þinn miklu betur en ég. Það er rétt að "félagsfælni" er ekki skráð sem nákvæm ábending Efexor Depot. Lyfið hefur aftur á móti góða virkni gegn kvíða en það er einmitt sterkur þáttur í félagsfælni. Að auki getur þunglyndi verið alvarlegur fylgikvilli félagsfælni. Það er líklega ástæða fyrir vali á lyfinu en það stendur ekki í upplýsingum sem þú getur komist yfir heldur er klínísk reynsla sem hver læknir hefur yfir að ráða eftir að hafa notað lyfið í kannski mjög svipuðum tilfellum áður og við það er ekkert athugavert. Einnig eru til rannsóknir sem sýna að lyfið henti. Ef þú ert eitthvað óánægð/ur með val á lyfi eða meðferðina þá ættir þú endilega að tala um það við þinn lækni, því það er mikilvægt fyrir hann að vita ef þú hefur ekki trú á meðferðinni.
Kveðja Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur