Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
cesium spurði:
Er seról á bannlista fyrir íþróttamenn?
Svar:
Nei, Seról er ekki á bannlista Alþjóða Ólympíunefndarinnar. Þeir efnaflokkar sem eru á bannlista eru eftirfarandi:
Örvandi efni
Deyfi- og verkjalyf
Vefaukandi efni
Þvagræsilyf
Peptíðhormón og skyld efni
Fyrrnefndu flokkarnir tveir eru einungis bannaðir í keppni, meðan hinir þrír eru bæði bannaðir í og utan keppni.
Efnaflokkar sem eru einungis bannaðir í sumum greinum eru:
Alkóhól
Kannabisefni
Staðdeyfilyf
Sykurhrífandi barksterar
Beta-blokkarar
Hvernig fólki dettur í hug að mæta útreykt eða drukkið til leiks í von um að bæta árangurinn skil ég ekki, en svona er listinn alla vega. Seról fellur ekki undir neinn þessara flokka, og er þar af leiðandi ekki bannað.
Bannlistinn er annars aðgengilegur á vefsíðum ÍSÍ (www.isisport.is).
Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur