Efexor Depot, Depsín og áfengi?

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Er í lagi að neyta áfengis stöku sinnum meðan maður tekur inn Efexor Depot og Depsín. (Er 18 ára) Tek eina Efexor töflu að morgni og svo Depsín á kvöldin eina til tvær til að geta sofnað.

Svar:

Sæll

Mælt er með því að þeir sem taki Efexor Depot forðist það að neyta áfengis. Áfengi eykur líkur á aukaverkunum lyfsins. Sama á við um Depsín, en áfengi getur aukið sljóvgandi áhrif lyfsins, þannig að mitt ráð er að best er að láta áfengi vera á meðan á þessari lyfjagjöf stendur. Þetta er mál sem þú skalt taka upp við þinn lækni.

Kveðja
Friðþjófur Már Sigurðsson
lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.