Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Ég er á Seroxat þunglyndislyfi og var að velta fyrir mér hvort það sé hætturlegt að drekka áfengi ef maður er á því. Sálfræðingurinn minn sagði mér að það væri allt í lagi, gæti í mesta lagi liðið verr daginn eftir í þynnkunni. Ég vil bara vera 100% viss.
Þakka ykkur kærlega fyrir!
Með fyrirfram þökk.
Svar:
Sæll
Almennt er ekki æskilegt að neyta áfengis þegar maður er að taka inn lyf. Áhrifin eru skiljanlega mismunandi eftir því hvaða lyf um er að ræða. Stundum getur það verið beinlínis hættulegt heilsu fólks, stundum getur það getur minnkað áhrif lyfja og þannig haft áhrif á lyfjameðferðina og í enn öðrum tilfellum eru áhrifin engin. Í Lyfjabókinni hér á síðunni er að finna helstu upplýsingar um flest þau lyf sem eru seld hér á landi. Þar er meðal annars að finna upplýsingar um áhrif áfengis á lyfið.
Hvað varðar Seroxat þá eru áhrif áfengis á lyfið ekki að fullu þekkt og því er óæskilegt að neyta áfengis meðan lyfið er tekið.
Kveðja, Heimir Þór Andrason, lyfjafræðingur