Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Getur Seroxat valdið svima við áreynslu, t.d. í fótbolta?
Svar:
Svimi er þekkt aukaverkun Seroxats. Þetta er nokkuð sjaldgæft eða rétt rúmlega 1 af 100. Sem sagt möguleiki. Það geta þó verið fleiri ástæður fyrir þessum svima hjá þér og ráðlagt að leita til læknis með þetta.
Kveðja, Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur