Cipramil og Fontex

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Hvernig er verkunin af þunglyndislyfinu Cipramil? Er lyfið skylt að uppbyggingu Fontex? Er hætta á bjúgmyndun og annari aukaverkun, t.d. ávanahættu við notkuns Cipramils?

Svar:

Sæll

Cipramil og Fontex eru náskyld lyf, þótt þau hafi ekki nákvæmlega sömu uppbyggingu. Bæði lyfin tilheyra flokki sértækra serótónín endurupptöku blokkara (SSRI). Þau hafa því mjög svipaða verkun og eiginleika á miðtaugarkerfið. Þessi lyf bæði þolast almennt vel og hafa lága tíðni aukaverkana. Fontex (Prozac) hefur þó fleiri þekktar aukaverkanir heldur en Cipramil. Það segir þó ekki að Fontex sé eitthvað verra lyf, heldur liggur skýringin mögulega í því að Fontex er eldra og mun meira notað og rannsakað heldur en Cipramil. En algengt er að eftir því sem lyf eldast og eru mikið notuð eykst þekking varðandi þau.

Þú getur lesið meira um mögulegar aukaverkanir í Lyfjabókinni með því að smella á nöfn lyfjana hér að ofan. Hvorugt þessara lyfja hefur ávanahættu. En bæði geta þau mögulega valdið aukaverkunum eins og öll lyf, þó fátítt sé. Algengasta aukaverkun Cipramils er ógleði með tíðnina 7 af hverjum 100. Aðrar aukaverknir Cipramils hafa tíðnina færri en 1 af hundrað. Algengustu aukaverkanir Fontex eru munnþurrkur og óþægindi frá meltingarvegi.

Ekki er þekkt að Cipramil geti valdið bjúgmyndun.

Kveðja, Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.