Hvað á ég að gera?

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Sæll Friðþjófur. Ég er að velta fyrir mér þunglyndislyfjum. Tel mig vera vægt þunglyndan. Hvað á ég að gera. Einn vægt þunglyndur.

Svar:

Sæll sjálfur

Nú eru til mjög margar gerðir þunglyndis og fjöldinn allur af þunglyndislyfjum og engin skömm af því að nota slík lyf ef þörf er á. Það er því ráðlagt fyrir þig að taka þessi mál upp við lækni, sem fær úr því skorið hvort þú sért yfir höfuð þunglyndur og ekki síst hvort þörf sé á lyfjameðferð eða einhverskonar annari meðferð.

Kveðja, Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.