Hvað get ég gert?

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Sæll. Mig langar að spyrja þig, þannig er að ég er nýbyrjuð að taka Efexor depot sem ég var látin hafa í staðinn fyrir Remeron. Eftir að ég hætti á Remeroninu og byrjaði á Efexorinu hef ég sofið illa, svitna mjög mikið, er oft flökurt, með svima og hausverk daglega. Nú er þetta búið að vera í viku, getur verið að þetta sé fráhvarf af Remeroninu eða aukaverkanir af Efexorinu? Er eitthvað sem ég get gert? Takk fyrir góð svör.

Svar:

Sæl

Þessu er nú erfitt að svara af eða á. Ég tel þó að líklegasta skýringin sé að þessi einkenni séu vegna aukaverkana Efexor Depot, ef hægt er að útiloka að þessi einkenni geti stafað af einhverri annarri ástæðu, t.d. sjúkdómi. Þessi einkenni gætu gengið yfir. Það er þó ekki hægt fyrir mig að svara því af eða á, nema með meiri upplýsingum. Hvort sem er þá skalt þú hafa samband við þinn lækni og ræða þessi mál.

Kveðja, Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.