Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Hefur lyfið Effexor 75mg á dag neikvæð áhrif á kynlíf. Ég tek líka Cipramil. Hvoru ætti ég að hætta ef bæði virka neikvætt á kynlíf?
Svar:
Það er rétt að bæði lyfin geta haft neikvæð áhrif á kynhvöt, þetta er þó mjög sjaldgæf aukaverkun. Ekki hætta að taka lyfin nema í samráði við lækni.
Það er í raun fremur lítið sem ég get bætt við þetta, og allra síst tjáð mig um hvoru lyfinu heppilegra er að hætta á í þessu tilfelli, ef þá þörf er yfir höfuð á því. Til þess hef ég allt of litlar upplýsingar, slíku á þinn læknir betur með að svara. Hafðu í huga að oft verður að meta hvort aukaverkanir séu léttari á vogaskálunum heldur en einkennin sem þau eiga að bæla. Því miður er sá möguleiki alltaf fyrir hendi að lyf geti valdið aukaverkunum, þótt sjaldgæfar séu, en ef þær eru lítilvægar (sem ég get ekki lagt mat á í þessu tilfelli) þá er ekki alltaf ástæða til þess að hætta lyfjagjöf. Eins og með alla lyfjagjöf þegar vandamál koma upp er full ástæða til þess að skoða málið og athuga hvort ástæða sé til breytinga. Hvet ég þig til að gera það í samráði við þinn lækni.
Kveðja, Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur