Spurning

Fræðsla og forvarnir > Geðheilsa > Spurt og svarað > Hvað er hægt að vera í mörg ár á svefnlyfjum?
Hvað er hægt að vera í mörg ár á svefnlyfjum?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Ég er með þunglyndissjúkdóm sem kom fram fyrir 7 árum. Ég geng til geðlæknis en er fín núna. Ég tek Fontex, Trilafon og Amilin við vefjagikt. Einnig er ég á svefnlyfi, Stilnoct og hef áhyggjur af að vera orðin háð því. En læknirinn minn segir að það sé fyrir öllu að ég sofi. Hvað er hægt að vera í mörg ár á svefnlyfjum ásamt öllum hinum lyfjunum án þess að það skaði líkamann?

Svar:

Sæl

Þetta er því miður það flókið mál að ég á erfitt með að svara þessu án þess að fá betri upplýsingar, eins og t.d. skammtastærðir, sjúkrasögu, o.fl. Þar þekkir læknir þinn mun betur til en ég.

Þó eru nokkrir hlutir sem mig langar að benda á, og mér fyndist alvegt eðlilegt að þú ræddir þá við þinn lækni.

Fyrir það fyrsta þá gengur bara alveg ágætlega að meðhöndla þín einkenni að eigin sögn og er það mjög jákvætt. Þú hefur áhyggjur af því að Stilnoct geti haft vanabindandi áhrif. Slíkar áhyggjur eiga alveg rétt á sér. Svefnlyf á ekki að nota að staðaldri, heldur einungis tímabundið og þá eftir þörfum. Ekki hverju kveldi í mánuði og allra síst ár. Það er þó auðveldara að segja þetta heldur en að framkvæma. Svefn er mjög mikilvægur og vandamál tengd honum geta verið mjög alvarleg. Hér eru upplýsingar varðandi Svefn og svefntruflanir sem þú skalt skoða, þær gætu mögulega hjálpað.

Annað er að Amilin og Fontex geta möglega milliverkað. Það er ekki algengt að þessi milliverkun komi upp en hún er möguleg. Flúoxetín hamlar niðurbrot amitryptilíns og getur það leitt til óþæginda tengudu því. Þarna ræður miklu um hvort þú ert á stórum skömmtum af Amilin og Fontexi eða ekki. Eins og ég sagði áður þá er sjaldgæft að þessi milliverkun komi upp en það er þó mögulegt, og því rétt að hafa það á bak við eyrað.

Bestu kveðjur,
Friðþjófur Már Sigurðsson
lyfjafræðingur