Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Ég er 46 ára og hef notað hormónalyfið Activelle í hálfan mánuð og finn fyrir verulegum aukaverkunum sem lýsa sér í þunglyndi. Ætti ég að bíða og sjá hvað gerist eða ætti ég að fara til læknis og fá eitthvað annað lyf í staðinn. Þetta er farið að há mér verulega. Takk fyrir, eva
Svar:
Þunglyndi er ein af þekktum aukaverkunum Activelle. Þannig að ráðlagt er fyrir þig að hafa samband við lækninn þinn og ræða þessi mál. Það þarf ekki endilega vera að lyfið sé að valda þessum einkennum en því get ég ekki svarað af eða á án frekari upplýsinga. En ef þú verður var við þessi einkenni nú eftir að hafa tekið lyfið í hálfan mánuð er það ágætis vísbending um að það geti átt einhverja sök.
Kveðja, Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur