Spurning

Fræðsla og forvarnir > Geðheilsa > Spurt og svarað > Stytta Stilnoct eða Flunitrazepam svefn
Stytta Stilnoct eða Flunitrazepam svefn
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Hefur Stilnoct eða Flunitrazepam einhver þau áhrif að svefn styttist eða gerir það að verkum að vaknað er fyrr en venjulega? Kv. M.H.

Svar:

Hið fullkomna svefnlyf ætti að hafa þau áhrif og engin önnur en að svæfa, eftir það ætti hinn "náttúrulegi" svefn að taka við. Flunitrazepam og Stilnoct eru ekki hið "fullkomna" svefnlyf að mínu mati (það er ekki til) en þau ættu ekki að stytta svefn, heldur væri miklu líklegra sérstaklega með Flunitazepam að það lengdi svefn vegna þess að það hefur lengri verkun en Stilnoct. Það þýðir þó ekki að Flunitrazepam sé betra svefnlyf en Stilnoct því það er það ekki. Ástæðan er sú að notkun Flunitrazepams hefur í för með sér ávanahættu. Einnig hefur það verri aukaverkanir eins og minnisleysi o.fl.

Það er ýmislegt sem getur valdið því að þú vaknar fyrr en venjulega. Ráðlegt er fyrir þig að kynna þér það sem kallað er "réttar" svefnvenjur og athuga hvort að eitthvað þar gæti mögulega hjálpað þér. Í raun eiga svefnlyf ekki að vera nema síðasta úrræði til þess að rjúfa vítahring svefnleysis. Þau á einungis að nota í stuttan tíma í senn. Lestu þessa grein eftir félaga Ými en hún tekur vel á málefninum um svefn Svefn og svefntruflanir.

Kveðja,
Friðþjófur Már Sigurðsson
lyfjafræðingur