Spurning

Fræðsla og forvarnir > Geðheilsa > Spurt og svarað > Ég er á mörgum lyfjum
Ég er á mörgum lyfjum
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Ég er á mörgum lyfjum t.d. Fontex 40 mg á dag, Thrilafon 2mg á dag, Amillyn 20 mg á dag og svefnlyfjum. Er ekki óhollt fyrir líkamann að vera á öllum þessum lyfjum?

Svar:

Lyf eru, oftast nær, notuð til lækninga eða varnar gegn sjúkdómum eða sjúkdómseinkennum. Tilgangurinn er sem sagt að bæta líðan. Oft duga einstök lyf en stundum þarf fleiri til. Það að fólk sé á mörgum lyfjum þarf ekki að þýða að þau hafi slæm áhrif á líkamann. Staðreyndin er hins vegar sú að því fleiri sem lyfin eru þeim mun meiri líkur eru á aukaverkunum og milliverkunum. Þetta þarf að skoða í hverju tilfelli fyrir sig. Þú nefnir þrjú lyf og ótiltekin svefnlyf. Skoðum þau aðeins nánar.

Milliverkanir:
Fontex getur aukið áhrif Amilíns. Þetta ber sérstaklega að skoða ef Fontexi er bætt við lyfjameðferð þar sem Amilín er til staðar fyrir. Einnig skal fylgjast vel með Trilafoni þegar það er gefið með öðrum sefandi lyfjum, sérstaklega svefnlyfjum.

Aukaverkanir:
Í einhverjum tifellum fylgja lyfjunum aukaverkanir. Tilgangur með notkun þeirra er að bæta líðan og því þarf auðvitað að meta kosti lyfjanna gagnvart aukaverkunum þeirra. Þetta getur verið mjög einstaklingsbundið.

Langtímanotkun:
Langtímanotkun á Amilíni og Fontexi er án vandkvæða. Notkun Trilafons til lengri tíma en í nokkra mánuði, og í háum skömmtum, getur leitt til síðkominna hreyfitruflana. Þær ganga þó í flestum tilfellum til baka nokkrum mánuðum eftir að töku er hætt. 2 mg telst lágur skammtur og því minni líkur á að þetta hendi þig.

Svefnlyf skal aldrei nota til langtíma. Þau eru notuð í nokkra daga eða vikur í senn, til að komast yfir ákveðinn þröskuld sem hefur skapast.

Kveðja, Heimir Þór Andrason lyfjafræðingur