Hypochondria

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Hvaða lyf eru notuð gegn "Hypochondriu"?

Svar:

Sæll

Fólk sem þjáist af hypochondriu er haldið sjúklegum áhyggjum af eigin heilsu. Það trúir því eða óttast að líkamleg einkenni sem það finnur fyrir séu af völdum alvarlegs sjúkdóms, jafnvel þó að læknisfræðileg greining bendi ekki til þess. Þetta er alvarlegur sjúkdómur sem krefst meðferðar, allavega stuðnings- eða viðtalsmeðferðar og lyfjameðferð hjálpar oft til. Hypochondria gerir engan greinamun á kyni, aldri eða þjóðfélagsstöðu.

Lyfjameðferð byggist á svokölluðum þunglyndislyfjum þar sem undirliggjandi orsök sjúkdómsins er oft einhver geðvandamál eða þunglyndi. Orap hefur verið notað sem fyrsta val, en einnig hafa lyf sem innihalda virka efnið flúoxetín verið notuð, en það eru þunglyndislyf eins og Seról, Flúoxetín Delta og Prozac.

Kveðja, Heimir Þór Andrason lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.