Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Ég hef verið á Seroxat v. kvíða í hálft ár og gefist mjög vel. Samhliða því hef ég tekið Imovane sem tryggir mér góðan svefn. Er í lagi í slíku tilfelli að halda áfram með Imovane t.d. árið í viðbót? Ef svo er ekki hvernig er best að trappa sig niður e. hálft ár? Get ég notað e-ð annað "skaðlausara" en Imovane til að bæta svefn?
Svar:
Sæl
Notkun á svefnlyfjum skal ætíð vera í hófi og eru almennt notuð til að rjúfa vítahring svefnleysis sem hefur skapast. Þannig koma þau helst að gagni. Langvarandi notkun er oftast gagnslaus og getur verið skaðleg. Auk þess eru þessi lyf ávanabindandi og eftir nokkurra vikna samfellda notkun getur verið erfitt að hætta, þrátt fyrir að lyfið sem slíkt sé hætt að virka. Þumalputtareglan er því að nota þessi lyf í hófi, eftir þörfum, og ekki lengur en í mánuð í senn.
Ég skil það þannig að þú hafir verið á Imovane í 6 mánuði. Þetta telst langur tími og í þínum sporum myndi ég fara huga að því að trappa mig niður og hætta notkun lyfsins. Ef þú hefur verið að taka eina töflu fyrir svefn þá getur þú prófað að taka hálfa töflu í stað einnar. Ef það gengur vel þá ert þú á réttri leið.
Í apótekum er hægt að nálgast mjög góðan bækling sem nefnist: "Fjöldi Íslendinga sefur illa...hvað með þig?". Hann er gefinn út af Pharmaco í samvinnu við Bryndísi Benediktsdóttur, heimilislækni, og þar er að finna mörg góð ráð. Einnig vil ég benda þér á grein um svefn og svefntruflanir.
Kveðja,
Heimir Þór Andrason lyfjafræðingur