Spurning

Fræðsla og forvarnir > Geðheilsa > Spurt og svarað > Hár skammtur af Efexor Depot
Hár skammtur af Efexor Depot
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Sæll ,mig langar að spurja um lyfið Efexor Depot, ég hef þjáðst af slæmu þunglyndi í nokkur ár og var fyrst á Seroxat síðan Efexor Depot og byrjaði á lágmarks skammti og núna lætur geðlæknirinn minn mig taka 300 mg er það ekki heldur mikið, ég las að hámarks skammtur væri 225 mg kveðja los

Svar:

Sæl/sæll

Já, það er rétt að samkvæmt Sérlyfjaskránni, en þar eru upplýsingar um lyf skráðar, þá er hámarksskammtur Efexor Depot sagður vera 225 mg/dag. Hærri skammtar eru ekki taldir geta gefið betri árangur. Ég hef hins vegar heimildir fyrir því að í alvarlegum þunglyndistilfellum hafi fólk svarað meðferð við 350 mg/dag að meðaltali. Þegar æskilegur árangur hefur náðst ætti að minnka skammtinn smám saman niður í minnsta viðhaldsskammt miðað við svörun og þol sjúklings.

Ef þú ert ekki örugg/öruggur með þessa lyfjameðferð þína skalt þú ræða þessi mál við lækninn þinn. Vona að þetta svari spurningu þinni.

Kveðja, Heimir Þór Andrason lyfjafræðingur