Er aukin sjálfsmorðstíðni tengd lækkuðu kólesteróli?

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Góðan daginn, ég er í framhaldsskóla og er að gera fyrirlestur um kólesteról. Ég las einhversstaðar að of lágt kólesterólmagn í líkamanum ylli árasargirni og aukinni sjálfsmorðstíðni. Nú langar mig að vita hvort það sé grundvöllur fyrir þessari staðhæfingu og hvernig maður getur verið með of lágt kólesterólmagn í blóðinu. (Ég las neflinlega að líkaminn á að geta framleitt allt kólesterólmagn sem hann þarfnast og kólesterólmagn í mataræði sé bara \"umframbyrði\"

Svar:

Sæll

Þessi fullyrðing er almennt ekki viðurkennd sem staðreynd. Sumar rannsóknir hafa sýnt að þeir sem fremja sjálfsvíg hafi lægra kólestól magn heldur en aðrir. Það hefur þó ekki verið sýnt fram á það að lækkað kólesteról sé orskök hækkaðri sjálfsmorðstíðni eða árásarhneigðar.

Aftur á móti hefur verið sýnt fram á að samfara þunglyndi fylgi oft vannæring og því lækkun á kólseteróli og samfara þunglyndi fylgi hækkuð tíðni sjálfsvíga. Þannig að fullkomlega óhætt er að gefa kólesteról lækkandi lyf án þess að þau auki tíðni sjálfsvíga. Fullt af rannsóknum á slíkum lyfjum styður slíka fullyrðingu.

Ef einstaklingur er vannærður fær hann ekki þau hráefni sem líkaminn þarf til framleiðslu kólesteróls.

Gangi þér vel með fyrirlesturinn
kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.