Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Hvernig virka lyfin Seroquel og Catapresan saman? Er algengt að þessi tvö lyf séu gefin börnum til lengri tíma, og þá jafnvel við ofvirkni eða tourette? Ef barn hefur verið greint ofvirkt og er ekki með ofnæmi fyrir neinum lyfjum er þá ekki í lang flestum tilfellum prófað að gefa því Ritalín? Ef ekki, í hvaða tilfellum er það þá ekki prófað?
Kærar þakkir.
Svar:
Ritalín er það lyf sem best hefur virkað gegn ofvirkni. Rannsóknir sýna að það virkar vel á um tvo af hverjum þremur.
Ritalin er ekki notað ef til staðar er ofnæmi fyrir metýlfenídati eða einhverju öðru innihaldsefni Ritalins. Kvíði, hreyfitruflanir, æsingur, ofstarfsemi skjaldkirtils, hjartsláttartruflanir, alvarleg hjartaöng og gláka. Er einnig frábending hjá sjúklingum með eða ef systkini eru með vöðvakippi eða hjá sjúklingum með annaðhvort sjúkdómsgreind Tourettes heilkenni eða fjölskyldusögu um slíkt. Það er ekki ætlað börnum yngri en 6 ára, ekki til meðhöndlunar á alvarlegri út- eða innlægri geðdeyfð. Einnig ber að fara varlega ef saga er um lyfja eða alkahól misnotkun, flogaveiki og ýmsar geðtruflanir.
Seroquel, mat á öryggi og verkun lyfsins hjá börnum og unglingum er ekki fyrirliggjandi.
Catapresan er venjulega notað saman með einhverju örvandi lyfi á miðtaugarkerfið. Rannsóknir sem styðja gagnsemi þess gegn ofvirkni eru ófullnægjandi, þannig að notkun þess byggir mögulega á klínískri reynslu hvers læknis. Lyfið er alment ekki ætlað börnum. Veit ekki til þess að þessi lyf séu alment mikið notuð gegn ofvirkni, enda ekki margt sem styður slíka notkun. Það getur vel verið að notkun þeirra sé réttlætanleg í einhverjum tilfellum.
Kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur