Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Hvað veldur köldum svita?
Svar:
Sæll sveittur.
Þú setur mig í klípu með þessari spurningu, en.....
Kaldur sviti er lífeðlisfræðilegt viðbragð sem getur átt sér orsakir í einhverskonar geðshræringu, spennu eða jafnvel streitu. Það getur einnig verið einkenni sjúkdóma, eða aukaverkun lyfja. Var eitthvað sérstakt sem þú hafðir í huga?.
Kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur