Spurning

Fræðsla og forvarnir > Geðheilsa > Spurt og svarað > Er í lagi að reykja með Zeldox og Seroxat
Er í lagi að reykja með Zeldox og Seroxat
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Kærastan mín hefur reykt í 3 ár, ég er alltaf að reyna að fá hana til að hætta en það gengur ekki. Núna nýlega greindist hún með þunglyndi og kvíðaröskun og þurfti að fara á zeldox og seroxat. Er í lagi að hún reyki með þessum lyfjum þó að það sé alls ekki í lagi að reykja yfir höfuð.

Svar:

Sæll

Ég vildi að ég gæti hjálpað þér að sannfæra hana og sagt að slíkt væri beint hættulegt. En ekki er þekkt að reykingar hafi bein áhrif á þessi lyf. Reykingar samfara lyfjanotkun er eitthvað sem er lítið rannsakað. Auðvitað væri best ef hún reykti ekki.

Reykingar samfara lyfjanotkun eru oft mjög í mótsögn við tilgang lyfjameðferðinnar. Enda má t.d. spyrja sig hver er tilgangurinn í því að gefa sjúklingi hjartalyf þegar hann reykir enn. En ein stærsti áhættuþáttur hjartasjúkdóma eru reykingar.

Kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur