Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
ég hef tekið seroxat með stuttum hléum í átta ár. Síðustu 3 árin hef ég tekið 60mg á dag sem ég tel vera frekar mikið. Málið er að síðustu vikurnar finnst mér aukaverkanir sem ekki voru áður vera að koma fram eins og svimi, nætursviti, þreyta o.s.frv. Núna eru einkennin t.d. þannig að mér líður eins og ég hafi gleymt að taka seroxat í marga daga. samt hef ég ekki misst úr dag og ég hef stjórn á kvíðanum. Það er aðallega þessi skrýtni svimi sem er næstum eins og rafstraumur og einhver hvisss hljóð í eyrun
Svar:
Sæl
Almenna reglan er að aukaverkanir komi fram fljótlega eftir að lyfjameðferð hefst. Það er þó engan veginn algilt þannig að mögulega ertu að finna fyrir aukaverkunum núna þó þú hafi ekki fundið þær áður. Þetta gæti svo líka mögulega verið eitthvað allt annað sem veldur þessu. Hafðu samráð við þinn lækni.
kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur.