Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Sonur minn er í háskólanámi erlendis. Ég hef tekið eftir að honum líður ekki vel. Hann er ekki ánægður með þennan háskóla sem hann er í og skilst mér að álagið á nemundunum sé ótrúlegt. Það er ekki bara hann sem þjáist. Mér skilst á honum að allir þeir sem með honum eru í bekk ætli eftir þriðja árið sem þeir eru í núna að skipta um háskóla. Hann vill klára þetta árið þrátt fyrir álagið.
Ég hef miklar áhyggjur af honum því ég tek eftir því að hann er orðin svo þögull og hann á erfitt með að einbeita sé
Svar:
Sæl
Það er ómögulegt fyrir mig að svara þessu af eða á. Ef þig grunar að um þunglyndi sé að ræða þá er um að gera að koma honum undir læknishendur og fá úr því skorið hvort eitthvað af því mótlæti sem hann verður fyrir nú megi rekja til þess. Þá fyrst væri grundvöllur fyrir því að fara að ræða hvort hitt eða þetta lyf henti honum, eða einhver önnur meðferð. Seroxat er ágætis lyf notað með góðum árangri.
Kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur