Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Hæ Hæ ég tel mig vera með þónokkra félagsfælni.
Ástæðan fyrir því að ég tel mig vera félagsfælinn er að ég
þoli ekki athygli. Á erfit með að vera innan um margt fólk.
Er að lenda í því að þegar vinir mínir eru að biðja mig um að
koma út á lífið semsagt fyllerí þá segi ég oftast já við því
og svo um einni klukkustund áður en ég á að hitta þá
kanski í party í heima húsi eða eitthvað. Þá er ég alveg á því
að hætta við því ég fæ kvíða og p.s ég hef hætt við vegna
þessa, oftar en einu sinni.
Þanni
Svar:
Sæll
Í þínum sporum myndi ég hafa samband við einhvern sem vinnur við það að ráðleggja fólki sem á við félagsleg vandamál að stríða. Sálfræðingar og geðlæknar eru þar á heimavelli. Varðandi lyf þá eru til lyf sem geta hjálpað fólki en þau eru ekki ávísuð nema að vel athuguðu máli.
Kv, Heimir lyfjafræðingur