Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Pétur L. spurði:
Standa einhver vísindaleg rök til þess að lyfið Proscar geti snúið við hárþynningu hjá körlum?
Svar:
Proscar er lyf sem er ekki notað gegn hárþynningu. Það inniheldur virka efnið fínasteríð 5 mg. Það kom fljótlega í ljós að ein af aukaverkunum þess voru áhrif á hárvöxt. Það var því sett á markað lyf sem heitir Propecia og inniheldur 1 mg fínasteríð og hefur ábendinguna karlmannaskalla á byrjunaarstigi ofl. Það hefur verið staðfest með vísindalegum rannsóknum að það hemur skallamyndun. En það þurfa að liggja fyrir víðtækar rannsóknir sem staðfesta verkun lyfja til þess að þau fái markaðsleyfi eða nýjar ábendingar. Þetta er þó að mínu mati ekkert kraftaverkalyf.
Þetta er ekki eina dæmið um að aukaverkanir lyfja hafi leitt til nýrra ábendinga fyrir lyf og þá oft í öðrum styrkleika. Get nefnt dæmi um t.d. Magnýl og blóðþynningu. Og Zyban, ein af aukaverkunum þess þegar það var notað sem geðlyf var að sjúklingar kvörtuðu undan því að þeir hefðu enga löngun til þess að reykja, þ.a þar er komin anti reykingapillan ein og hún er oft kölluð.
Þú getur lesið um þessi lyf í Lyfjubókinni hér á vefnum.
Kveðja Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur