Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Hvaða vörum mælið þið með sem fyrirbyggja hrukkur þegar komnar eru fínar línur?Er með blandaða húð og milli 20-30.Hef heyrt að Neostata línan sé góð,súrefnisvörurnar og margar aðrar.Svo sá ég nýja línu hjá ykkur Allison.Það er bara svo margt í boði að maður veit ekkert hvað er gott og virkar.En ég vona að þið sérfræðingarnir vitið eitthvað.Takk fyrir.
Svar:
Sæl
Góð spurning. Það er mikið úrval í Lyfju af slíkum vörum, því er erfitt að fara að nefna eða mæla með einhverri tegund fram yfir aðra. Best er fyrir þig að leita til snyrtifræðings í Lyfju. T.d. Lyfju Smáratorgi þar sem úrvalið er hvað mest. Þar getur þú fengið ráðgjöf og jafnvel prufur. Misjafnt er hvað hentar hverjum og einum. Jafnvel þó húðgerð þeirra sé nokkuð lík.
Kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur