Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Ég er 15 ára strákur í íþróttum og ég er með asma. Mjög lítinn en ég tek samt alltaf púst á kvöldin til að fyrirbiggja. Lyfið heitir Seretide Diskus. Mér skilst að það séu barksterar eða eitthvað því líkt í þessu lyfi. Sterar geta haft einhverja áhrif á hæð fólks skildist mér á einhverjum og þess vegna langaði mig að spurja hvort að svona barksterar mindu hækka mig eða minnka. Ég veit samt að það hefur ekki mikil áhrif en bara velti þessu fyrir mér. Ég fer ekki að taka meira eða minna af þessu innöndunarpús
Svar:
Sæll
Það er rétt að að barksterar geti haft áhrif á vöxt. Þetta er þó mjög sjaldgæf aukaverkun sem engu að síður þarf að hafa gætur á.
Eða eins og Sérlyfjaskráin segir: "Barksterar til innöndunar, sérstakleg þegar þeir eru notaðir í háum skömmtum í lengri tíma, geta valdið almennum aukaverkunum. Mun minni líkur eru á þessum einkennum en við notkun barkstera til inntöku. Hugsanlegar aukaverkanir eru m.a. bæling á nýrnahettustarfsemi, seinkun á vexti hjá börnum og unglingum, beinþynning, drer í auga og gláka. Þess vegna er mikilvægt að skoða sjúklinginn reglulega og að finna lægsta skammt af innönduðum barksterum sem nægir til að halda niðri einkennum astma.
Ráðlagt er að fylgjast reglulega með hæð barna, sem nota barkstera til innöndunar í lengri tíma."
Kveðja Friðþjófur lyfjafærðingur