Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
aral spurði:
Sæll. Er að velta því fyrir mér hvort ekki sé æskilegt að nota þvagræsilyf þegar maður er með of háan blóðþrýsting og bjúg.
Svar:
Sæll sjálfur
Það er rétt að það er talið mjög æskilegt að nota þvagræsilyf við of háum blóðþrýstingi. Þvagræsilyf eru fyrsta val við háþrýstingi samkvæmt leiðbeiningum flestra heilbrigðisstofnana í heiminum. Þ.e.a.s. það lyf sem fyrst er mælt með að nota. Nú eru yfirleitt orsakir háþrýstings ekki þekktar hjá hverjum einstaklingi fyrir sig. En ef t.d. ástæðan er nýrnasjúkdómur þá verka þvagræsilyf oft ekki sem skildi vegna þess að þau verka jú á nýru. Auka myndun þvags. Það er því ýmislegt sem getur haft áhrif á fyrsta val lyfs við háþrýstings og langt frá því að það sé þvagræsilyf sem henti öllum.
Hjarta og æðakerfið er í einfölduðu máli ekkert annað en "lokað" vökvaflæðikerfi. Þ.e. dæla og pípur. Þessu má líkja við að blása í blöðru. Ef við blásum í blöðru eykst þrýstingur en ef við hleypum lofti út lækkar hann. Sama á við um blóðrásarkerfið þ.e. ef við hleypum af kerfinu með því að auka þvagmyndun með þvaræsilyfjum (auka Þvag) þá lækkar þrýstingur. Einnig eru til lyf sem verka á samdráttarkraft hjarta og slaka á æðum og þannig minka þrýsting. Fleiri lyf eru til. Þetta er mjög einföldum mynd á hugsuninni er á bak við þau.
Þar sem aðalverkun þvagræsilyfja er að auka þvagmyndun fylgir því vökvalosun. Þetta þýðir að lyfin verka vel gegn vökvasöfnun. Vökvasöfnun getur átt sér orsakir í sjúkdómum eins og hjarta og æðasjúkdómum, nýrnasjúkdómum, við hormónabreitingar t.d. tengdar tíðarhvörfum, ofl. Þvagræsilyf eru því oft notuð gegn bjúgmyndun.
Hafa ber þó í huga að að sogæðakerfið gegnir mikilvægu hlutverki við að ná vökva úr vef. Hreyfing er mjög mikilvæg til þess að þetta kerfi verki sem skildi. Og getur því reglubundin hreyfing oft gert mjög góða hluti fyrir þá sem safna á sig bjúg. Einnig er gamla góða tuggan að saltneysla bindi vatn í líkamanum aldrei of oft kveðin. Því salt bindur jú vökva í líkamanum og tíma tekur fyrir líkamann að skila því út aftur og ná jafnvægi þ.e. svo lengi sem saltneysla er minnkuð. Því eiga hjarta og æðasjúklingar að nota salt í hófi.
Bjúgur vegna háþrýstings. "Á skiljanlegu máli (vonandi)". Jafnvægi er á milli þrýstings í æðum (blóðþrýstings) og vökva í vef. Ef allt er eðlilegt þá fer vökvi undan þrýstingi úr æð yfir í vef og að miklu leiti til baka úr vef yfir í æð aftur. Það sem eftir er verður tekur sogæðakerfið upp og skilar til baka. Ef þrýstingur eykst í æð (hækkaður Blóðþrýstingur) þá á vökvin erfiðara með að komast til baka. Þetta getur orðið það mikill vökvi að sogæðakerfið hefur ekki undan. Þ.a.l. bjúgur (vökvi) safnast í vef.
Kveðja Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur