Spurning

Fræðsla og forvarnir > Hjarta- og æðakerfið > Spurt og svarað > Má ófrísk kona taka Lasix?
Má ófrísk kona taka Lasix?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Rós spurði:
Má ófrísk kona taka Lasix 40mg. Er komin 9 vikur á leið

Svar:

Fúrósemíð, virka efnið í Lasix berst yfir fylgju og getur haft áhrif á fóstrið. Hættan er þó mest á síðasta þriðjungi meðgöngu, en þá er lyfið aðeins notað þegar brýn þörf er fyrir það, og í sem minnstum skömmtum.

Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur