Spurning

Fræðsla og forvarnir > Hjarta- og æðakerfið > Spurt og svarað > Er Magnýl blóðþynnandi?
Er Magnýl blóðþynnandi?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

matthildur spurði:
Eftir því sem ég best veit er það almennt viðurkennt að Magnýl geti verið blóðþynnandi - er notkun þess sem slíkt læknisfræðilega viðurkennt, m.a. við meðferð hjartasjúklinga?

Svar:


Magnýl minnkar samloðun blóðflaga og lengir því storknunartíma blóðs. Magnýl er notað í litlum skömmtum (150 mg á dag) til að draga úr líkum á blóðtappamyndun hjá hjartasjúklingum og eftir aðgerðir.

Kveðja,
Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur