Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
LB spurði:
Ég byrjaði að taka Atenolol og Milizide mide fyrir 10 dögum síðan við of háum blóðþrýstingi, ég tek 25mg af Atenolol og eina töflu af hinu. Það sem mig langar að vita er hvort það sé eðlilegt að fá náladofa í hendur og bjúg af þessum lyfjum og eins finnst mér eins og hjartslátturinn aukist aftur seinnipart dagsins og er oft mjög hraður um kvöld og nætur?
Svar:
Þekkt aukaverkun Atenólóls eru áhrif á blóðflæði til útlima, sem getur valdið hand og fótkulda. Ég tel að mögulegt sé að atenólólið sé að valda þessu sem þú upplifir sem náladofa, 25 mg eru þó ekki stór skammtur af lyfinu en gæti dugað til að valda þessu. Nú gefur þú ekki upp miklar upplýsingar eins og hvenær tíma dags þú tekur lyfin ofl. En algengt er að þau séu tekin um morgun. Ef svo er þá er eðlilegt að virkni lyfsins sé farin að dvína þegar líður á daginn og það gæti mögulega valdið þeim einkennum sem þú lýsir að gerist á kvöldinn fleira getur þó valdið þessu en erfitt er fyrir mig að svara þessu án frekari upplýsinga.
Milizide Mite (inniheldur 2 virk efni, amilóríð og hýdróklórtíazíð) er þvaglosandi lyf (oft kallaðar bjúgtöflur) og ætti að hafa jákvæð áhrif á bjúg.
Þetta er því tvímælalaust mál sem þú skalt taka upp við þinn lækni og það fyrr en síðar, því þessi meðferð virðist ekki vera að virka eins og hún ætti, það er ekki eðlilegt að maður þurfi að sætta sig við aukaverkanir lyfja sem sjálfsagðan hlut, en víst getur komið upp sú staða að þess þurfi. Ég tel svo ekki vera að þessu sinni. Það eru til mun fleiri blóðþrýstingslækkandi lyf sem mögulega geta hentað þér betur, þessi meðferð með þessum 2 lyfjum er oft prufuð sem fyrsta meðferð. 10 daga eru þó ekki langur tími en hafðu samt samband við læknin sem ávísaði lyfjunum í upphafi.
Kveðja
Friðþjófur Már Sigurðsson
lyfjafræðingur