Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Af hverju stafar bjúgur? Hvað er helst til ráða til að losna við bjúg? Er t.d. einhver matur sem eykur bjúgmyndun, hvað með vín? Eru til einhver þvagörvandi lyf til að losna við bjúg? Getur rauðvínsdrykkja valdið því að maður fær bjúg í kringum augu? Hvað á maður að forðast (mat og drykk) til að fá ekki bjúg? MG
Svar:
Bjúgur er óeðlileg uppsöfnun vökva milli fruma í líkamanum (millifrumuvökva). Þetta stafar af starfrænum göllum í líffærum, t.d. hjarta-, nýrna- eða lifrarbilun. Bjúgur getur þó komið fyrir í útlimum án þess að nein orsök sjáist (sjálfvakinn bjúgur).
Þeim sem hafa tilhneygingu til að fá bjúg er ráðlagt að draga úr saltneyslu. Jafnvægi milli neyslu og útskilnaðar natríum (úr salti) er nauðsynlegt til að halda jöfnu rúmmáli millifrumuvökva.
Það eru til margar tegundir þvagræsandi lyfja, með miskröftuga verkun. Þessi lyf eru öll lyfseðilsskyld, en hægt er að nota náttúruefni með milda þvaglosandi verkun í vægum tilfellum, t.d. te eða trönuberjaþykkni.
Áfengi hefur áhrif á stjórnun vökvabúskapar líkamans. Það hindrar losun hormóns sem dregur úr þvagmyndun. Áfengi hefur þannig þvagræsandi áhrif, og hófleg drykkja ætti ekki að valda bjúg.
Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur