Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Mamma spurði:
Er Clarityn algengt lyf við kattar ofnæmi? Er í lagi fyrir 10 ára gamalt barn að taka það inn? Þarf að taka lyfið inn reglulega, svo að líkaminn verði ekki ónæmur fyrir því? Getur lyfið haft einhverjar aukaverkanir?
Svar:
Clarityn er eitt mest notaða ofnæmislyfið. Áhrifin af því vara í 1-2 sólarhringa eftir stakan skammt, en geta varað í allt að 8 sólarhringa þegar lyfið er tekið reglulega í nokkurn tíma. Það ætti ekki að myndast þol gegn áhrifum lyfsins, hvort sem það er notað annað slagið eða að staðaldri í einhvern tíma.
Það er óhætt fyrir 10 ára gamalt barn að nota lyfið, en venjulegur skammtur fyrir barn þyngra en 30 kg er 10 mg (ein tafla) á dag.
Algengustu aukverkanir lyfsins eru munnþurrkur eða höfuðverkur - þú getur lesið nánar um lyfið og aukaverkanir þess með því að smella á nafn þess hér fyrir ofan.
Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur