Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Er hægt að vera með ofnæmi fyrir pillunni? Ef svo er hvernig áhrif getur það haft á mann? ahauhu
Svar:
Lyfjaofnæmi er eitthvað sem getur mögulega komið upp með öll lyf, jafnvel p-pilluna.
Tíðnin er einhverstaðar á bilinu 2-25% og í langflestum tilfellum eru einnkenni mjög væg t.d. útbrot, en alvarlegast er lífshættulegt ástand, anaphylaxis (fólk getur hætt að anda), en það er mjög sjaldgæft.
Penicillin er talin algengasta lyfjatengda orsök anaphylaxis eða 1 af hverjum 50.000. Það ætti að þýða að mögulega séu u.þ.b. 5 Íslendingar í þeim hópi. Langflest ofnæmisviðbrögð penicillins eru væg húðútbrot, en penicillin er nokkuð sér á báti varðandi þetta, því það hefur verið notað í rúm 50 ár og við þekkjum því mjög vel allar aukaverkanir og vandamál tengd notkun þess.
Það eru þó yfirleitt ekki lyfin sjálf heldur niðurbrotsefni þeirra sem valda ofnæmissvari en þau geta tengst próteinum og myndað immunogen.
Ofnæmisviðbrögðum er skipt í 4 gerðir eftir því hvernig og hvenær þau koma fram. Ofnæmisviðbragð getur komið mjög fljótt fram, eða eftir notkun í skamman tíma, daga eða vikur. Það getur einnig komið fram mánuðum, eða árum seinna eftir að hætt var að nota lyfið, ef byrjað er aftur á notkun þess. Jafnvel þótt engin einkenni hafi komið fram upphaflega.
Eins og ég sagði áður er mjög sjaldgæft að alvarleg ofnæmisviðbragðatilfelli komi upp. En að sjálfsögðu er rétt að vera á varðbergi gagnvart slíku. Og ef þú telur að slíkt sé mögulegt varðandi þig þá er rétt fyrir þig að hafa samráð við lækni um framhaldið.
Mismunandi gerðir p-pillna ættu ekki að valda sama ofnæmissvari. Og möguleiki er að skipta út einni fyrir aðra tegund ef grunur sé um ofnæmissvar af völdum hennar.
Kveðja, Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur