Spurning

Fræðsla og forvarnir > Ofnæmi > Spurt og svarað > Syfja vegna ofnæmislyfja
Syfja vegna ofnæmislyfja
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Sæll Ýmir Ég þjáist af miklu gróðurofnæmi á sumrin ... nú er sá tími að ganga í garð, því miður fyrir mig ... af hverju? jú málið er það að ég tek claritin töflur og augndropa og nefúða sem slær mikið á einkennin, en það er ein skelfileg aukaverkun sem ég fæ á þessum lyfjum.. ég verð eins og ég sé með svefnsýki, ég er alltaf að missa augun í svefn og geng um eins og draugur af því ég er svo syfjuð og þreytt. Þetta hefur mikil lamandi áhrif á mig og oft er ég að spá í hvort er verra ofnæmið eða áhrif lyfjann

Svar:

Það er líklegast að áhrifin stafi af Clarityn töflunum - bæði augndroparnir og nefúðinn virka staðbundið og lítil hætta á öðru en staðbundnum aukaverkunum af þeim lyfjum. Þreyta og syfja hafa löngum verið leiðigjarn fylgifiskur ofnæmislyfja (sjá grein) en með nýrri lyfjum hefur þetta verið minna vandamál. Clarityn tilheyrir annarri kynslóð ofnæmislyfja, og það er mjög sjaldgæft að það (og önnur lyf með sama virka innihaldsefni: Lóritín, Lórín) valdi þreytu eða syfju. Það er þó ekki útilokað, og ef það hefur þetta mikil áhrif á daglegt líf er eina ráðið að prófa eitthvað annað annarrar kynslóðar ofnæmislyf. Til dæmis Histal eða Histasín (fást án lyfseðils), en önnur lyf í þessum flokki sem eru oft notuð eru Telfast og Kestine (bæði lyfseðilsskyld).

Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur