Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Mr. G spurði:
Hérna í útlöndum eru allir í líkamsræktinni að taka eitthvað yomhimbin sull,hvað er það,og hvað gerir þetta??
Svar:
Yohimbin er aðalega notað við risvandamálum og öðrum blóðrásartruflunum. Það er ekki leyft hér á landi. Ástæða þess er væntanlega sú að það er vand með farið vegna hættu á alvarlegum aukaverkunum og eiturverkunum. Einnig hefur Yohimbin mjög stutt bil milli verkunar og eiturverkunar, þ.a. ef t.d. gleymist að taka skammt þá á ekki að taka tvöfaldan næst vagna hættu á eiturverkunum.
Verkun er ekki þekkt að full og efasemdir eru um gagnlega verkun yfirhöfuð. Þetta er því eitthvað sem á ekki að taka nema í samráði við lækni. Þetta er ekkert nýtt fyrirbæri í náttúruefna heiminum. Notkun Yohimbin hafði minnkað mjög mikið en auknar vinsældir má væntanlega rekja til tilkomu Viagra. Yohimbin er bara ekkert Viagra.
Aukaverkanir
t.d. Hækkun á blóðþrýsting, ör hjartsláttur, svimi, höfuðverkur, ógleði og uppköst, svitaköst, skjálfti, útbrot, og ýmis áhrif á hegðun.
Frábendingar. þ.e. þeir sem ættu alls ekki að nota Yohimbin undir nokkrun kringumstæðum, þeir sem hafa sögu um hjartasúkdómar, háþrýstingur, ofnæmi fyrir efninu ofl.
Þetta er því að mínu mati ekkert sem þú skalt vera að koma nálægt allavega ekki nema þá í samráði við lækni.
Kveðja Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur