Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
gberg spurði:
Getur verið lífshættulegt að drekka of mikið kaffi?
Svar:
Fræðilega séð þá getur kaffi verið lífshættulegt. 5-10 gramma skammtur af kaffeini getur verið lífshættulegur. Þetta eru hins vegar mjög margir kaffibollar en einn kaffibolli inniheldur ca 100 mg af kaffeini. Við erum því að tala um 50-100 kaffibolla í einu.
Kveðja, Heimir Þór Andrason lyfjafræðingur