Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Imop spurði:
Ég neyti ekki koffíns, þó drekk ég stöku sinnum kók. Hins vegar finnst mér mjög gott og hressandi á morgnana að fá mér kókómjólk. Hvaða efni eru það í kókómjólkinni sem gerir mann svona hressan? -Fyrirfram þökk fyrir svarið.
Svar:
Kakó er unnið úr kakóbaunum sem vaxa á Theobroma cacao trjám í hitabeltisskógum. Spænski landvinningamaðurinn Hernando Cortés heillaðist af kakódrykknum og flutti hann til Evrópu. Það voru síðan Vestur-Evrópu þjóðir sem útfærðu drykkinn frekar, bætu við mjólk og sykri, og úr varð drykkurinn "Heitt súkkulaði".
Kakó er örvandi efni, líkt og kaffi, kók og te, en þó mun mildara þar sem kaffín innihald þess er minna. Einn kakóbolli inniheldur ca 10 mg af kaffíni samanborið við kaffibolla sem inniheldur ca 100 mg af kaffíni. Kakó inniheldur einnig örlítið af efni sem nefnist theobromide. Þetta efni getur valdið vægri örvun á miðtaugakerfið og hjartað.
Vona að þetta svari spurningu þinni
Kveðja, Heimir Þór Andrason lyfjafræðingur