Spurning

Heilsa og vellíðan > Náttúruvörur > Spurt og svarað > Næturmegrun með barn á brjósti?
Næturmegrun með barn á brjósti?
Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

fluga26 spurði:
Sæll Friðþjofur mig langar til að vita hvort eg geti tekið BIOSCULPT(næturmegrun) a meðan eg er með barn a brjosti. Takk fyrir.

Svar:

Sæl Fluga26

Ekki er ráðlagt fyrir ófrískar eða konur með barn á brjósti að vera neyta náttúruvara eða vera í megrun. Með margar náttúruvörur og jafnvel mörg lyf liggja ekki fyrir nægjanlegar upplýsingar um öryggi. Því þá að vera að taka áhættuna. Að auki þá finnst mér hugmyndin að vera að hugsa um að megra sig á meðan meðgöngu eða brjóstagjöf stendur ekki sniðug. Hvers vegna? Jú vegna þess að þegar einstaklingur er í megrun þá er hann óneytanlega að taka næringu frá sér. Ófrísk kona eða kona með barn á brósti er því einnig að taka næringu frá fóstrinu eða barninu. Rétt næring er mikilvægur grundvöllur fyrir þroska barnsins. Mér finnst því réttast að hinkra með "megrun" þangað til næring barns er ekki háð næringu móður.

Kveðja Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur