Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
doddi46 spurði:
Er Kava Root lyf og ef svo er við hvaða sjúkdómum er það notað?
Svar:
Kava er pipar jurt. Í rótinni er mest magn virkra efna. Notkun hennar er rakin til eyjaskeggja í Kyrrahafi. Fyrstu kynni hins vestræna heims eru rakin til frægs landkönnuðar Captain Cook. Eyjaskeggjar notuðu Kava við félagsleg tækifæri eins og t.d. að bjóða ferðalanga velkoma. Drukku þeir rótina uppleysta í kókósmjólk til þess að komast í væga "vímu" og til að losa um málbeinið. Ekki ósvipað og t.d. alkahól er notað af sumum í dag.
Upp úr 1966 voru hin virku efni í Kava einangruð. Helst er verkunin rakin til efnasambanda sem eru kölluð kavalactonar. Virkast er efnið Dihydrokavaín sem hefur róandi, verkjastillandi og einhverja virkni gegn ógleði. Önnur virk efni eru Kavaín, methysticín, og Dihydromethysticín.
Verkun er ekki að fullu þekkt en nýlegar rannsóknir benda til þess að virkni sé ekki ólík og hjá diazepam lyfjum sem hafa m.a. áhrif á GABA.
Notkun Sjálfsagt öllu mögulegu, en helst: taugaveiklun, kvíða, spennu, og pirringi. Einnig hefur það verið notað við spennuhöfuðverk og jafnvel fráhvarfseinkennum alkahólisma.
Rannsóknir sem gerðar hafa verið sem eitthvað mark er takandi á gefa vísbendingu um að Kava verki að einhverju leiti eins og menn hafi haldið fram þ.e. róandi og kvíðastillandi. Það hefur m.a. verið borið saman við þekkt lyf s.s. oxazepam (Sobril, Serepax), og bromazepam (Lexotan). Margir halda því fram að Kava hafi mjög svipaða kvíðastillandi og róandi verkun og þessi lyf án þess að hafa sömu ávana hættu og mörg slík eldri lyf. Ég er alveg á því að það geti verið mikið til í því en ég hef þó enga reynslu af notkun Kava, því það hefur ekki verið "leyft" fánalegt á Íslandi. Ef það verður leyft er mjög líklegt að það verið skráð sem náttúrulyf eins og Baldrian og Modigen.
Skammtar Kava er venjulega selt í stöðluðum magni fyrir Kavalactóan. Til kvíðastillandi og róandi meðferðar er mælt með 40-70 milligrömmum af kavalactónum 3svar á dag og hámarksskammtur á dag má ekki fara yfir 300 mg. Sem svefnbætandi eru teknir 210 mg klukkustund fyrir svefn.
Er kava öruggt? Notkun Kava virðist í lagi ef ekki er farið uppfyrir ráðlagða skammta.
Aukaverkanir Ekki eru þekktar margar aukaverkanir. Það þýðir þó ekki að þær séu ekki til. Því Kava er venjulega ekki notað undir handleiðslu læknis og þ.a.l. er engin sem heldur utan um að skrá aukaverkanir er þær koma upp. Það er þó þekkt að Kava geti valdið meltingartruflunum, og ofnæmisútbrotum (ég fann engar tíðnitölur varðandi hversu algengar þessar aukaverkanir eru). Mikil langtíma notkun, mánuðir, ár getur valdið hreisturútbrotum (kava dermopathy) sem hverfa þegar neyslu er hætt. Það hafa verið tilfelli þar sem Kava vörur hafa verið sakaðar um að valda lifrarskemmdum en það hefur ekki fengis staðfest af eða á. Jafnvel er talið að einhver önnur aukaefni í framleiðslu hafi valdið þessu.
Þekktar milliverkanir Kava virðist geta aukið áhrif alkahóls og annara róandi lyfja. Það á því ekki að taka það með öðrum róandi lyfjum. Kava getur mögulega haft áhrif á ökuhæfni. Kava getur einnig haft áhrif á virkni parkinson lyfja.
Það er mjög oft með náttúrulyf að það eru ekki til miklar og góðar rannsóknir sem hægt er að taka mjög trúanlegar varðandi virkin, öryggi osfv. Þetta er mjög algengt í náttúruefnaiðnaðnum því engin getur í raun fengið einkaleyfi á því að framleiða Kava, sem hægt er að tína út í náttúrinni. Þetta leiðir til þess að náttúruefnaiðnaðurinn stendur mjög höllum fæti miðað við hin hefðbundna lyfjaiðnað þar sem á bak við hvert lyf sem er markaðsett liggur allt að 10 ára þróunar og rannsóknar vinna sem miðar að því að finna mögulegar aukaverkanir, milliverkanir, og sýna fram á gagnsemi, virkni ofl. Síðan fær lyfjaframleiðandi 10 ára einkaleyfi til þess að fá þennan kostnað til baka. Engin færi út í slíkt með Kava
Kveðja Friðþjófur Már Sigurðsson lyfjafræðingur