Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
SKL spurði:
Er Spánska flugan á bannlista hjá lyfjaeftirlitinu og ef svo er hvers vegna? Einnig vil ég fá að vita hvort það virkar kynörvandi eins og sagt er.
Svar:
Spánska flugan inniheldur cantharidin, sem er ertandi eiturefni. Ef efnið er tekið inn veldur það brunatilfinningu í hálsi og maga, ógleði, uppköstum, kviðverkjum, blóðugum niðurgangi, blóðugum uppköstum, blóðmigu og blóðþrýstingsfalli, svo eitthvað sé nefnt. Efnið getur verið banvænt.
Ef cantharidin berst á húð veldur það brunablöðrum og sviða.
Af ofantöldu má telja nokkuð ljóst að spanskfluga hentar ekki sem kynörvandi efni. Notkun hennar sem slíks var sennilega byggð á því að í sumum tilfellum getur hún valdið standpínu - sársaukafullri stinningu sem getur jafnvel varað svo lengi að drep kemur í liminn. Þessi notkun var sem sagt byggð á misskilningi.
Kveðja, Ýmir Vésteinsson lyfjafræðingur