Vantar betra en Herbalife te sem bjúglosandi?

Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:

Ég með roslegan bjúg (eiginlega í öllum líkamanum) Er að drekka Herbalife teið til að losa vökva úr líkamanum en vantar eitthvað betra sem er bjúglosandi, veistu hvað það getur verið?

Svar:

Sæl

Ég ráðlegg þér að leita til læknis með þetta. Þér að segja eru til mun betri leiðir til þess að losa bjúg, heldur en með Herbalife te, hvað sem hver annar segir.

Mestu máli skiptir þó fyrir þig að fá úr því skorið hvað það er sem veldur þessari bjúgsöfnun. Það geta verið ýmsar orsakir fyrir bjúgsöfnun sumar mjög alvarlegar, sem ég tel ekki upp hér. Læknir verður að skera úr um afhverju þetta er og finna bestu leiðinna til þess að takast á við þetta.

Með fullri virðingu fyrir Herbalife.

Bestu kveðjur
Friðþjófur lyfjafræðingur

© Copyright 2002-2012, Lyfja hf. Allur réttur áskilinn.