Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Kæri sérfræðingur, þetta lítur út sem smávægilegt sem er kannski en mjög óþægilegt, ég er með króníska hellu fyrir eyrun sem er alveg að gera mig vitlausa, búið að vera mjög lengi þá er ég að tala um árin, ég er búin að fara til sérfræðing og segir hann þetta tengjast nefinu á mér og fyrir utan að borga honum 5000 kr til að segja mér þetta þá borgaði ég annað eins fyrir úða ,krem ,dropa !!!! en ég er alltaf með þessa hellu í báðum eyrum, ég er frekar lá í blóðþrýsting svo ekki er það ,en mig langaði að spyr
Svar:
Sæl
Því miður er ekkert slíkt mér vitanlega til. Þetta er því miður kvilli sem oft getur verið þrálátur og til vansa, og erfitt að ráða við. Ef sérfræðingurinn sem þú fórst til fann ekki út úr þessu er alveg ástæða til þess að fara til einhvers annars. Þá Háls-, nef- og eyrnasérfræðings.
vona að þetta komi að einhverju gagni
kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur