Spurning barst þann 27.8.2007
Spurning:
Hvað er feverfew og getur verið skaðlegt að taka það inn með öðrum lyfjum eða vítamínum?
Svar:
Sæl
Feverfew eða Glitbrá er jurt, sem notuð hefur verið í einhver hundruð ár í Evrópu til óhefðbundinar lækninga, aðalega gegn höfuðverk, gigt, tíðatruflanir, húðsjúkdómum, magaverkjum, astma og hita, en nafnið er dregið af latneska orðinu febrifugia eða hitalækknadi. Jurtin hefur verið vinsæl gegn höfuðverk í kringum 1980.
Hvort jurtin virkar gegn öllum þessum kvillum er óstaðfest með rannsóknum, svo ekki sé meira sagt.
Eins og með flest náttúruefni er illa rannsakað hvort það geti milliverkað við hefðbundin lyf. Þekkt er þó að jurtin getur verið varasöm fyrir fólk sem tekur blóðþynnandi lyf og þá sem taka bólgueyðandi verkjalyf.
Kveðja Friðþjófur lyfjafræðingur